dEUS - Worst Case Versus In a Bar
fös., 02. okt.
|Austurbæjarbíó
dEUS mun stíga á svið í Austurbæjarbíó þann 2. október næstkomandi og flytja efni af fyrstu tveim plötum sveitarinnar, Worst Case Scenario (1994) og In a Bar, Under the Sea (1996).


Time & Location
02. okt. 2026, 20:00 – 23:00
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík, Iceland
About the event
Miðasala: https://www.midix.is/is/deus-worst-case-versus-in-a-bar-02-oct-2026/eid/1154 Belgíska hljómsveitin dEUS mun leika á sérstökum tónleikum í Austurbæjarbíói 2. október næstkomandi og flytja efni af fyrstu tveimur plötum sveitarinnar, Worst Case Scenario (1994) og In a Bar, Under the Sea (1996).
Tónleikarnir eru hluti af sérstakri tónleikaferð sem ber heitið Worst Case Versus In A Bar, en dEUS hefur ferðast til útvaldra borga í Evrópu það sem af er ári. Reykjavík verður síðasti viðkomustaðurinn á tónleikaferðalaginu.
Á dagskránni verða helstu lög platnanna tveggja, auk laga sem hafa aldrei áður verið flutt á tónleikum. Þetta er því ekki aðeins nostalgíuferð heldur endurvakning tveggja platna sem hljóma enn jafn ferskar, kraftmiklar og tímalausar og þegar þær komu út.
dEUS eru: Tom Barman, Klaas Janzoons, Stephane Misseghers, Alan Gevaert og Simen Følstad Nilsen.
Hljómsveitin Ensími sér um upphitun, en hún fagnar 30 ára starfsafmæli á þessu ári.

